|
|
|
fréttir/news um mig/about me rakkar/males tíkur/females hvolpar/puppies tenglar/links standard tegundin snyrting |
um mig / about me
|
Minn
fyrsta dvergschnauzer eignaðist ég þegar ég flutti inn Dimmu frá Noregi árið
2002. Dimma heillaði mig með persónuleika sínum og gáfum og í framhaldi af
því kviknaði áhugi minn á að rækta þessa frábæru hundategund. Eftir
mikla leit og vangaveltur urðu svo París og Númi fyrir valinu sem nýjir
fulltrúar tegundarinnar. Þau komu svo loks í ágúst og september 2005
eftir fjögurra vikna dvöl í Hrísey. Síðan hef ég haldið eftir
hvolpum úr eigin gotum og flutt inn fleiri hunda.
Það
má segja að dvergschnauzer hafi algjörlega heillað mig og hef ég haft
mikinn áhuga á að leggja mitt af mörkum fyrir stofninn. Stóð ég meðal
annars fyrir stofnun schnauzerdeildarinnar og sit nú þar í stjórn. Jafnframt
fór ég til Noregs til að læra réttu handtökin við snyrtingu tegundarinnar
og hef haldið námskeið til að kenna reytingatæknina hér á landi. Ég legg
áherslu á að rækta góða og fjölskylduhæfa einstaklinga, sem eru við góða
heilsu, vel umhverfisþjálfaðir og með svartan og strían feld. En góður og
strír feldur gerir alla feldvinnu miklu auðveldari og hundurinn lítur alltaf
vel út. Áhuginn er mestur fyrir svarta litnum og rækta ég eingöngu svarta
dvergschnauzera. Samkvæmt FCI eru litir í schnauzer aðskildir með tilliti
til ræktunar og sýningar og fær hver litur sitt meistarstig og alþjóðlega
stig. Í mörgum löndum er bannað að para saman ólíka liti nema sækja sérstaklega
um undanþágu til þess og þá eru færð rök fyrir því hvert markmiðið
er í ræktuninni. Yfirleitt er það þá gert á þeim forsendum að stofn ákveðins
litar er það lítill að sóst er eftir nýjum genum til að víkka hann. Eða
að sóst er eftir ákveðnum eiginleikum sem hinn liturinn hefur. Aftur á móti
eru einnig lönd sem leyfa blöndun lita og viðhafa ekkert eftirlit með þessu
í ræktun. En allt er gott í hófi og nauðsynlegt er að hafa í huga hver sé
tilgangurinn með þessu eins og öllu öðru í ræktuninni.
Með innflutningi á mörgum hundum eru ég svo heppin að hafa kynnst góðum ræktendum erlendis sem ég get leitað til og gefa mér ýmis ráð og leiðbeiningar. Hundarnir mínir búa inni á heimilinu og eru alltaf í kringum mig og fjölskyldu mína. Nokkrir búa hérna hjá mér og nokkrir búa annarstaðar sem eru í minni eigu. Vonandi hafið þið gaman að því að skoða síðuna og endilega hafið samband ef þið hafið einhverjar spurningar.
----------------------------------------
I started to know this breed when I and my familie lived in Norway in five years. After we moved home again we wantet to have a black miniature schnauzer. Then we heard they didn´t exist in Iceland. We decided to import our first female from Norway 2002 which we called Dimma. Dimma fascinated us with her character and we wanted to have another one. We searched for a long time, at last we found Paris and Numi. Finally we had them at our home in august and september 2005 after four weeks in quarantine. Since then I have imported more dogs and had a few litters. I have kept some puppies from my litters and will hopefully be able to go on with my dogs and breed dogs I can be proud of.
Líney Björk Ívarsdóttir Ásbúð 23 210 Garðabær Iceland Tel: +354 8996555
|