|
fci standard
|
Upprunaland: Þýskaland
Útgáfa standard: 06.03.2007
Nýting: Heimilishundur og félagi
Flokkun FCI: Tegundahópur 2
Almennt útlit Lítill, sterklegur, þéttvaxinn frekar en grannur, grófur feldur, fágaður. Smækkuð mynd af Standard schnauzer án þess að vera með dvergútlit.
Mikilvæg hlutföll Kassalaga þar sem hæð á herðakamb er nær því jöfn og lengd líkamans. Lengd höfuðs (mælt frá nefbroddi til hnakkabeins) samsvarar hálfri lengd topplínunnar (mæld frá herðakambi að skottstöðu).
Skapgerð Eðli hans líkist schnauzer og er ákvörðuð af skapgerð og hegðun lítils hunds. Greindur, óttalaus, þrekmikill og árvökull, sem gerir Dverg schnauzer að þægilegum heimilishundi sem og varðhundi og félaga og hæfan til að búa í litlu húsnæði án vandræða.
Höfuð Höfuðkúbu svæði (cranial region)
Höfuð (skull): Sterklegt, aflangt án áberandi hnakkabeins. Höfuðið skal samsvara afli hundsins. Ennið flatt án hrukka og í samsvörun við brún nefsins.
Ennisrót (stop): Vel afmörkuð á milli augabrúna
Andlitssvæði (facial region)
Nef (nose): Vel formað. Skal alltaf vera svart
Trýni (muzzle): Endar í bitlausum fleyg. Brún nefsins bein
Varir (lips): Svartar, sléttar og strekktar. Strekkt munnvik
Kjálki/tennur (jaws/teeth): Kröftugur, efri og neðri kjálki. Fullkomið skærabit (42 hvítar tennur) sem eru vel formaðar og lokast vel. Þroskaðir kjálkavöðvar, en kinnarnar mega ekki trufla rétthyrnt höfuðið (með skeggi).
Augu (eyes): Meðalstór, sporöskjulaga, horfa fram á við, dökk og lífleg. Augnlokin strekkt.
Eyru (ears): Hangandi, liggja ofarlega, v-formuð, innri kantur skal liggja þétt að kinn, jafnt staðsett, beygjast niður á gagnaugu. Leggjast samsíða, ættu ekki að vera fyrir ofan höfuðkúbu.
Háls (neck) Sterklegur, vöðvamikill hálsinn er drengilega hvelfdur og blandast mjúklega herðakambi. Sterklega byggður, grannur, drengilega bogadreginn og samsvarar vel afli hundsins. Húð framan á hálsi strekkt og laus við hrukkur.
Líkamsbygging (body) Topplína (topline): Örlítið aflíðandi frá herðakambi að bakhluta.
Herðakambur (withers): Er hæsti punktur topplínunnar.
Bak (back): Sterklegt, stutt og strekkt
Lendar (loins): Stuttar sterklegar og djúpar. Fjarlægðin á milli síðasta rifbeins og mjaðmar er stutt og sýnist hundurinn samanþjappaður.
Malir (croup): Örlítið ávalar og samblandast stöðu skottsins
Brjóst (chest): Hæfilega breitt, ávalt í þvermáli og nær niður á olnboga. Frambrjóstið er greinilega afmarkað með vísun í bringubeinið.
Undirlína og kviður (underline and belly): Síða ekki of mikið uppbrett. Myndar sveigða línu út frá neðri hluta brjóstkassans.
Skott (tale): Náttúrulegt. Sóst er eftir að það sveigist eins og sigð.
Limaburður (limbs) Frampartur (forequarters): Séð að framan, sterklegar framlappir, beinar og ekki of nálægt hvor annarri. Séð frá hlið, framhandleggur beinn.
Axlir (shoulders): Axlarblöðin liggja þétt að rifbeinunum og er góður vöðvamassi sitt hvoru megin við axlarbeinið. Axlir eru aflíðandi eins og mögulegt er og afturliggjandi, mynda 50° lárétt horn.
Bógleggur (upper arm): Liggur þétt að líkamanum. Sterklegur og vöðvamikill, myndar 95°- 105°horn í átt að axlarblaði.
Olnbogar (elbows): Mátulega nálægir, vísa hvorki innávið né útávið.
Sperruleggur (forearm): Séð frá öllum sjónarhornum, fullkomlega beinn, vöðvamikill og sterklega byggður.
Úlnliðs liðamót (carpal joint): Sterkleg, þétt, standa naumlega undan byggingu framhandleggs.
Framleggur (pastern): Séð að framan, lóðréttur. Séð frá hlið, aðeins aflíðandi í átt að jörðu, sterklegur og lítilsháttar fjaðrandi.
Framfótur (forefeet): Stuttur og hringlaga. Tær, vel hnýttar og hvelfdar (kattafætur), með stuttar svartar neglur og þolinn þófa.
Afturhluti (hindquarters): Stendur skáhallt, séð frá hlið. Stendur samsíða, en ekki of þétt saman þegar séð er aftan frá.
Læri (upper thigh): Hæfilega löng, breið og vöðvamikil
Hné (stifle): Vísa hvorki inn á við né út á við.
Fótleggur (lower thigh): Langur, sterkur og vöðvastæltur. Rennur niður í sterklegan hækil.
Hækill (hock): Vel vinklaður, sterklegur, þéttur, vísar hvorki innávið né útávið.
Afturleggur (metatarsus): Stuttur, lóðréttur að jörðu
Afturfætur (hind feet): Stuttar tær, hvelfdar og hnýttar. Stuttar, svartar neglur.
Hreyfingar Sveigjanlegar, glæsilegar, fimar og frjálsar. Framfætur sveiflast eins langt fram og hægt er, fjaðrandi afturfætur bjóða upp á nauðsynlegan drifkraft. Framfótur á annarri hliðinni og afturfótur á hinni hreyfast fram á sama tíma. Bakhluti, liðband og liðamót eru þétt.
Húð Leggst vel yfir allan líkamann
Feldur Hárafar: Feldurinn á að vera strír, hrjúfur og þéttur. Samanstendur af þéttum undirfeldi og ekki of stuttum yfirfeldi sem liggur þétt að líkamanum. Yfirfeldurinn er grófur og nægilega langur í samsetningu, ekki broddóttur eða bylgjaður. Hár á útlimum eru ekki eins gróf. Feldur stuttur á höfði og eyrum. Dæmigerð karaktereinkenni er ekki of mjúkt skegg á trýni og loðnar augabrýr sem aðeins skyggja á augun.
Litur
Þegar ræktað er pipar/salt er viðmiðið millitónn með jafndreifðum góðum lit, piparlit með grárri undirull. Litaafbrigði leyfð frá dökk járngráum til silfurgrátt. Dökk gríma á að undirstrika útlitið sem passar við litinn á feldinum óháð lit hundsins. Greinileg ljós einkenni á höfði, brjósti og útlimum eru óæskileg. Fyrir svart/silfraðan er viðmiðið svartur yfirfeldur með svörtum undirfeldi, með hvít auðkenni yfir augum, á vanga, á skeggi og hálsi. Tveir þríhyrnings blettir á brjósti, á framfótum, á fótum, innan á afturfótum og í kringum endaþarm. Enni, háls og utan á eyrum á að vera svart á litinn eins og yfirfeldurinn.
Hæð og þyngd Hæð á herðakamb, hundar og tíkur á milli 30 - 35 cm Þyngd, hundar og tíkur um það bil 4 - 8 kg.
Frávik Öll frávik frá áðurnefndum viðmiðum þarf að skoða sérstaklega og líta á sem galla. Hversu alvarlegur gallinn er, skal meta eftir því hversu mikið frávikið er með tilliti til standarlýsingar.
Alvarleg frávik
Veruleg frávik
Hundur sem sýnir líkamlega- eða atferlis afbrigðilega hegðun er óhæfur. Ath. Karlhundur þarf að hafa tvö eðlileg eistu sem falla niður í punginn
Þýðing: Líney Björk Ívarsdóttir
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Allur réttur áskilin © 2010
Afritun á efni á vefsvæði Kolskeggs ræktunar er með öllu óheimil nema með leyfi eiganda
??????????????