|
fréttir / news
22. júlí 2010
Hef betrumbætt lítillega síðuna og sett inn nýja skemmtilega grein um
dvergschnauzer sem birt var í tímaritinu Dýrin mín árið 2008.
Í greininni er meðal annars fjallað um uppruna tegundarinnar og
fyrstu hundana sem komu til Íslands.
30. júní 2010
Eigum eftir eina yndislega og rólega tík og leitum að heimili fyrir hana.
7. júní 2010
Nýjar myndir komnar inn af hvolpunum og við
leitum að heimilum fyrir þá.
Hvolpamyndir
Irju got
Lísu got
6. júní 2010
Það gekk glimrandi vel á sýningunni um helgina.
Sunna (Barba Nigra Miss Sunshine) varð besti hundur tegundar og lenti í öðru sæti í tegundahóp,
Tinna (Kolskeggs Giselle Arsenal) varð besti hvolpur tegundar og
Bjartur (Kolskeggs Gambler Everton) varð annar besti hvolpur tegundar.
Great show this weekend, Kolskeggs Giselle Arsenal BOB puppie and
Kolskeggs Gambler Everton BOS puppie.
Barba Nigra Miss Sunshine, CAC, BOB and BIG2,

27. mai 2010
Hvolparnir eru nú orðnir 5 vikna og dafna vel.
Nýjar myndir hér sem teknar voru í dag úti í sólinni.
Við leitum nú að heimilum fyrir hvolpana og einnig að fóðurheimili fyrir tík.
Áhugasamir hafi samband.
Góð greiðslukjör í boði.
15. mai 2010
Hvolparnir eru nú tæplega 4 vikna og dafna ágætlega.
Þeir eru byrjaðir að smakka á mat og Irju hvolpar eru sérstaklega áhugasamir og duglegir.
Nýjar myndir komnar. New photos
H-got / litter
I-got / litter
3. mai 2010
Hvolparnir dafna vel og eru aðeins að byrja að opna augun. Aladdin og Esmeralda úr Lísu goti voru ansi lítil og voru ekkert
að bæta á sig fyrstu dagana eins og sést á línuritinu. Eftir að hafa bætt aðeins á þau þurrmjólk gaf það þeim aukinn kraft til að halda
sig almennilega við efnið og fóru þau bæði að taka við sér og eru núna í fluggírnum að bæta á sig grömmum.
Hægt er að sjá myndir af þeim nýfæddum undir linknum hvolpar en nýjar myndir koma fljótlega.
H-got / H-litter

I-got / I-litter

Svo kemur hér ein af Kolskeggs Gambler Everton (Bjarti) sem kom í heimsókn í dag.
Hann er hálfbróðir hvolpanna, samfeðra. Bjartur er svolítið gelgjulegur enda aðeins
4 mánaða. Hann virkar samt mjög efnilegur og verður spennandi að fylgjast með honum þroskast.
Photo of Kolskeggs Gambler Everton 4 months old.

22. apríl 2010
hvolpar / puppies
H- got / H - litter
I - got / I - litter
Það er ótrúleg frjósemi í tíkunum okkar og kom verulega á óvart þessi fjöldi hvolpa. Kolskeggs Candy Cortina (Irja) gaut sínum
hvolpum á 59. degi meðgöngunnar, en hún paraðist aðeins einu sinni og þar af að leiðandi auðvelt að reikna það nákvæmlega út.
Hvolparnir hennar eru ekki stórir en braggast mjög vel, eru heilbrigðir og fallegir.
Kolskeggs Brave Jovin (Lísa) gaut sínum hvolpum á degi 61. Þeir eru agnarsmáir allir saman þar sem þessi litla tík gekk
með 9 stykki í allt, en aðeins 5 af þeim fæddust lifandi. Hinir 4 sem fæddust andvana voru augljóslega
ekki með pláss til að þroskast í móðurkviði vegna fjöldans og náðu ekki þroska á við hina. En litla duglega tíkin okkar kom
þessu öllu frá sér á eðlilegan hátt og stóð sig eins og hetja. Þetta verður jafnframt hennar síðasta got og munum við
dekra við hana það sem eftir er ævi hennar. Hvolparnir hennar Lísu eru farnir að hanga á spena en það tók smá tíma fyrir þá.
Vonandi munu þeir svo bæta á sig og dafna eins vel og Irju hvolpar.
21. apríl 2010
Fæddir hvolpar.
Myndir og nánari upplýsingar koma á næstu dögum.
1. apríl 2010
Fengum senda þessa flottu mynd af Kolskeggs Gambler Everton (Bjarti) sem er farinn á fóðurheimili.
Photo of Kolskeggs Gambler Everton taken by his new owner Gudrun Ragnarsdottir

22. mars 2010
Við eigum von á hvolpum
6. mars 2010
Kolskeggs Giselle Arsenal er komin með yndislega fjölskyldu og farin að
heiman.
Það hefur óneitanlega róast heilmikið hér hjá okkur, ekki lengur tveir litlir ærslafullir hvolpar
hlaupandi um allt.
Kolskeggs Gambler Everton nýtur sín nú í faðmi fullorðnu tíkanna okkar og hagar sér eins og
hefðarmaður, rólegur og yfirvegaður, yndislegur lítill hvolpur. Við leitum nú í rólegheitunum
að fóðurheimili fyrir hann og þeir sem hafa áhuga á svoleiðis samningi, endilega hafi samband
og við ræðum málin. Á meðan mun hann búa hér hjá okkur.
4. mars 2010
Hvolparnir Arsenal og Everton eru nú orðnir 9 vikna.
Við leitum að heimili fyrir þá.

2. mars 2010
Það gekk mjög vel hjá okkar hundum á sýningunni um helgina. Our dogs
were doing fine on the show last weekend.
Dark Prince Hermes REC- CACIB
Kolskeggs Elmó Tantalos - Excellent and 1. place in open class
Kolskeggs Flora Octavia BOS 6-9 months puppie class
Kolskeggs Fido Ceasar 3. place 6-9 months puppie class
Kolskeggs Candy Cortina CAC, CACIB, BOS

14. febrúar 2010
Hvolparnir Arsenal og Everton fóru í myndatöku í dag til hennar
Rakelar Óskar Sigurðardóttur og er hluti af afrakstrinum hérna.
The photographer Rakel Ósk took this pictures
![]() |
||
![]() |
||
![]() |
|
12. febrúar 2010 Hvolparnir eru nú orðnir 6 vikna og leita að nýju heimili. Hér eru fleiri nýjar myndir af þessum glæsilegu hvolpum Puppies are now 6 weeks old and looking for a new home. New photos here ![]() |
|
23. janúar 2010
Sunna kom loksins úr einangrun í gær eftir 4 vikna bið. Það gengur mjög vel með hana og hún small saman með hinum tíkunum hérna heima.
Sunna is finally at home after four weeks in quaranteen.
|
|
6. janúar 2010
Puppies were born on the 31. dec. 2009.
|
|
19. október 2009
Sunna, tíkin okkar í Danmörku var sýnd í gær og varð BOB (besta baby) og BIS2 baby.
Hún er bara 5 mánaða og mjög efnileg. Dómurinn sem hún fékk er hægt að sjá hér.
Sunna, our new female from Denmark got BOB in babyclass and BIS2 baby. She is only 5 months old.
Myrkvi er orðinn heimsóknarvinur rauðakrossins og fer núna aðra hverja viku í heimsókn á elliheimilið Grund. Hann er einstaklega skapgóður hundur og fór auðveldlega í gegnum prófið sem allir hundaheimsóknavinir þurfa að taka áður en þeir fá grænt ljós á vinnuna.
|
Allur réttur áskilin © 2010
Afritun á efni á vefsvæði Kolskeggs ræktunar er með öllu óheimil nema með leyfi eiganda